English
Auðlindadeild Umhverfisdeild Starfs- og endurmenntun=
3.9.2010 
Í dag hófst kornskurður á tilraunastöð Landbúnaðarháskóla Íslands á Möðruvöllum í Hörgárdal. Byrjað var á því að skera sáðkorn af íslensku yrki sem er sérstaklega fljótþroska sem á að fjölga áfram næsta sumar áður en það fer í dreifingu. Uppskeran er í slöku meðallagi en talið er að þurrkar í byrjun sumars hafi leitt til þess að fjöldi axa sem kemur upp af hverju fræi hafi skerts. Meðfylgjandi mynd tók Þóroddur Sveinsson, tilraunastjóri á Möðruvöllum, fyrr í dag.
3.9.2010 
Háskólaráð Borgarfjarðar er samstarfsvettvangur Landbúnaðarháskóla Íslands, Viðskiptaháskólans á Bifröst og Borgarbyggðar. Einnig situr fulltrúi Snorrastofu í ráðinu. Háskólaráðið hefur komið að fjölmörgum málum og má þar nefna að á sínum tíma kviknaði hugmyndin að Menntaskóla Borgarfjarðar í því. Ragnar Frank Kristjánsson forseti sveitarstjórnar Borgarbyggðar og lektor við LbhÍ sagði að á fundi í Háskólaráði Borgarfjarðar hefði verið fjallað um samskipti og sameiginleg verkefni sveitarfélagsins og háskólanna. Auk þess hefðu farið fram afar gagnlegar umræður um hlutverk ráðsins í framtíðinni. "Umræðurnar voru mjög góðar og einlægur vilji til að vinna saman að sameiginlegum hagsmunum," sagði Ragnar og bætti því við að fram hefði komið, að háskólaráðið þyrfti að setja sér ný markmið, sem meðal annars gætu tengst stofnun vísindagarða og sprotafyrirtækja.
2.9.2010 
Á næstunni verða fjögur „einingabær" námskeið haldin á vegum Endurmenntunar LbhÍ. Í fyrsta lagi er um að ræða námskeið sem fjallar um skjól, skipulag og skóg, þá námskeið um skipulagskenningar og aðferðir, tölfræðinámskeið og að lokum námskeið um skipulagslögfræði og stjórnsýslurammann.




 



 










  

Hvaða sveppi er hægt að nýta?
Fljótlega býður Endurmenntun LbhÍ upp á námskeið um sveppatínslu. Námskeiðið hentar þeim sem vilja fræðast um íslenska sveppi. Nánar hér.